Þú ert hér > Hellisholar.is > Fréttir

Fréttir

15.4.2013 11:49:27
Golfskólinn sumarið 2013 á Hellishólum

Golfskólinn sumarið 2013

Sumarið 2013 verður í boði  námskeið í Golfskólanum á Hellishólum, námskeiðið fyrir bæði kynin.

Skráning er hafin í síma: 487-8360 eða hellisholar@hellisholar.is

Golfskólinn á Hellishólum

 
25.7.2012 14:03:41
Dagskrá verslunarmannahelgarinnar á Hellishólum 2012
Dagskrá verslunarmannahelgarinnar á Hellishólum 2012. 
8.7.2012 23:06:30
Golfnámskeið á Hellishólum
Golfnámskeið á Hellishólum 14. Júlí Námskeiðið stendur frá kl. 09.00-17.00 Námskeiðið skiptist í eftirfarandi þætti. 120 mín á æfingasvæðinu (Videogreining á staðnum) 120 mín í stutta spilinu (vipp og pútt) 9-holu spilakennsla á vellinum. Þetta námskeið er fyrir kylfinga á öllum aldri og öllum getustigum leiksins. Einnig er þetta námskeið upplagt tækifæri til að laga golfleikinn ef hann hefur ekki skilað þeim árangri sem ætlast var til ásamt því að vera flottur dagur til að taka sín fyrstu skref og fá öll grunnatriði golfleiksins á hreint. Kennari á námskeiðinu verður Sigurpáll Sveinsson, PGA kennari og formaður samtaka atvinnukylfinga á Íslandi. Honum til aðstoðar verður Víðir Jóhannsson verðandi golfkennaranemi  Innifalið á námskeiðinu. Golfkennsla í 4 klst. Spilakennsla Æfingaboltar Vallargjald Kaffi Hádegismatur Verð 15.000 kr. Skráning í síma 487-8360 eða hjá hellisholar@hellisholar.is  
26.4.2012 09:17:23
Golfskólinn Hellishólum 18-20 júní
Golfskólinn sumarið 2012 Sumarið 2012 verður í boði 1 námskeið í Golfskólanum á Hellishólum, námskeiðið fyrir bæði kynin. Skráning er hafin í síma: 487-8360 eða hellisholar@hellisholar.is Golfskólinn á Hellishólum Námskeiðið er þriggja daga. Hópnum verður skipt í tvo hópa. Annar hópurinn spilar 9-18 holur og hinn fer í kennslu á meðan. Eftir hádegismat skipta hóparnir um hlutverk. 18.-20. júní - Námskeið fyrir bæði kynin Við erum stolt að kynna að PGA golfkennarinn Sigurpáll G. Sveinsson mun kenna í golfskólanum á Hellishólum sumarið 2012. Sigurpáll hefur verið einn af okkar fremstu golfspilurum undanfarin 15 ár. Sigurpáll hefur hampað íslandsmeistaratitil karla þrisvar sinnum. Hann var fastamaður í landsliðum Íslands frá árinu 1991 - 2003. þegar hann gerðist atvinnumaður í golfi. Á 5 ára ferli sem atvinnumaður hefur Sigurpáll reynt að komast inná evrópsku mótaröðina, en ekki náð þeim árangri enn. Sigurpáll hefur gríðarlega reynslu sem afreksmaður í golfi bæði hérlendis og erlendis. Árið 2005 ákvað Sigurpáll að fara í golfkennaranám, enda hafði hann starfað við barna-og unglingakennslu frá árinu 1991. Sigurpáll hefur kennt fólki á öllum getustigum golfsins síðan 2005. Hann útskrifaðist frá golfkennaraskóla Íslands vorið 2008 og hefur getið sér gott orð sem golfkennari. Í dag starfar Sigurpáll sem golfkennari ásamt því að vera formaður PGA á Íslandi, sem eru samtök atvinnukylfinga og golfkennar á Íslandi. Þess má geta einnig að Sigurpáll hefur margsinnis verið farastjóri í hinum ýmsu golfferðum og kennt í golfskólum erlendis á vegum íslenskra ferðaskrifstofa og ættu því margir golfferðalingar að kannast við hann. Sigurpáll G. Sveinsson Uppbygging skólans sumarið 2012 3ja daga skóli Nemendum er skipt í tvo hópa A og B. Hóparnir skiptast á að vera í golfkennslu og spila á velli. Dagur 1 08:00 Morgunmatur 09:00 Hópur A golfkennsla, farið verður í grunnatriði, s.s. uppstillingur, grip, mið, boltastöðu, golfsveiflu ofl. Pelz æfingar, ekkert tengt klæðaburði :-) 09:00 Hópur B spila á velli 10:30 Kaffi hjá kennsluhóp 11:00 Æfingasvæði. Sveiflan tekin uppá video hjá kennsluhóp 12:15 Hádegismatur og umræður um skorkort 13:00 Hópur A spila á velli 13:00 Hópur B golfkennsla, sama dagsskrá og fyrir hádegi, kaffi kl. 14:30 19:30 Videoskoðun 20.00 Kvöldmatur Dagur 2 08:00 Morgunmatur 09:00 Hópur B golfkennsla, grunnatriði púttstrokunnar æfð með áherslu á lengdar- og stefnustjórnun 09:00 Hópur A spila á velli 10:30 Kaffi 11:00 Grunnatriði stuttra vippa æfð með áherslu á lengdar- og stefnustjórnun. 12:15 Hádegismatur og umræður - hvað er forgjöf. 13:00 Hópur B spila á velli 13:00 Hópur A golfkennsla, sama dagsskrá og fyrir hádegi, kaffi kl. 14.30 16.15 Allir saman í Sandgryfju kennslu. 20:00 Kvöldmatur og kvöldvaka Dagur 3 08:00 Morgunmatur 08:30 Lærðu reglurnar og umgengni. Verklegt 11:00 Pútt, vipp og sláttur - þrautir. 12.30 Matur 13:15 Fyrsti rástími í golfmóti golfskólans (ekkert stress fyrir þá sem eru byrjendur) 16:30 Kaffi, verðlaunaafhending og kveðjustund Verð kr. 54.900 á mann Innifalið: Gisting, fullt fæði, golfkennsla, golfhringir og kvöldvökur.  
6.3.2012 16:57:43
Aðalfundur Golfklúbbsins Þverá, Hellishólum
Aðalfundur Golfklúbbsins Þverá, Hellishólum. Fundurinn byrjar kl. 14:00 í veitingarsal Hellishóla. Dagskrá. 1. Skýrla stjórnar. 2. Skýrsla nefndar. 3. Kosið í nefndir. 4. Önnur mál. Hver fullgildur meðlimur fer með 1 atkvæði. Um kvöldið ætlum við að borða saman og hafa huggulega kvöldstund. Allir félagsmenn, fastagestir tjaldsvæðis, vinir og kunningar velkomnir. Kvöldverður byrjar kl. 20:30 Matseðill er eftirfarandi Grillhlaðborð að hætti kokksins Eftirréttur kemur þægilega á óvart. Verð aðeins kr. 2.500 per mann. Guðaveigar verðar seldar á vægu verði. Borðapantandir þurfa að berast eigi síðan en á hádegi fimmtudag. Golfmót kl. 10:00 laugardaginn 10. mars Ef veður leyfir verður 9 holu golfmót og byrjar kl: 10. Ræst út frá öllum teigum. 1-verðlaun frír matur fyrir einn um kvöldið. 2-verðlaun frítt að drekka með kvöldmatnum fyrir einn aðila. 3-verðlaun tvær könnur af öl eftir golfhring. Verð per mann kr. 1.500- Skráning milli 9-10 á laugardeginum.  
13.2.2012 19:53:08
Verðskrá fyrir föst stæði og golfgjald
 
21.8.2011 17:42:07
Opna iGolf golfmótið á Hellishólum
 
26.7.2011 22:33:31
Verslunarmannahelgin 2011
Versló 2011 
24.5.2011 15:47:16
Goslokahátíð - laugardaginn 28. maí 2011
 
28.3.2011 21:36:04
Golfskólinn á Hellishólum
Golfskólinn á Hellishólum Golfskólinn á Hellishólum hefur verið starfsræktur frá árinu 2005. Skólinn býður uppá sérstök kvenna-, hjóna- og almenningsnámskeið. Námskeiðin eru haldin í nokkra daga í senn, innifalið er golfkennsla, golfhringir, fullt fæði, gisting og kvöldvökur á meðan á dvölinni stendur. Golfkennslan er fyrsta flokks kennd af afbragðs golfkennurum, erlendum og innlendum. Skólinn er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Golfskólinn sumarið 2011 Sumarið 2011 verða í boði 2 námskeið í Golfskólanum á Hellishólum, fyrsta námskeiðið er einungis tileinkað konum, annað námskeiðið er fyrir bæði kynin. Skráning er hafin í síma: 487-8360 eða hellisholar@hellisholar.is Kvennanámskeið og almenningsnámskeið Námskeiðið er þriggja daga. Hópnum verður skipt í tvo hópa. Annar hópurinn spilar 9-18 holur og hinn fer í kennslu á meðan. Eftir hádegismat skipta hóparnir um hlutverk. 08.-10. júní - kvennanámskeið 20.-22. júní - almenningsnámskeið Við erum stolt að kynna að PGA golfkennarinn Sigurpáll G. Sveinsson mun kenna í golfskólanum á Hellishólum sumarið 2011. Sigurpáll hefur verið einn af okkar fremstu golfspilurum undanfarin 15 ár. Sigurpáll hefur hampað íslandsmeistaratitil karla þrisvar sinnum. Hann var fastamaður í landsliðum Íslands frá árinu 1991 - 2003. þegar hann gerðist atvinnumaður í golfi. Á 5 ára ferli sem atvinnumaður hefur Sigurpáll reynt að komast inná evrópsku mótaröðina, en ekki náð þeim árangri enn. Sigurpáll hefur gríðarlega reynslu sem afreksmaður í golfi bæði hérlendis og erlendis. Árið 2005 ákvað Sigurpáll að fara í golfkennaranám, enda hafði hann starfað við barna-og unglingakennslu frá árinu 1991. Sigurpáll hefur kennt fólki á öllum getustigum golfsins síðan 2005. Hann útskrifaðist frá golfkennaraskóla Íslands vorið 2008 og hefur getið sér gott orð sem golfkennari. Í dag starfar Sigurpáll sem golfkennari ásamt því að vera formaður PGA á Íslandi, sem eru samtök atvinnukylfinga og golfkennar á Íslandi. Þess má geta einnig að Sigurpáll hefur margsinnis verið farastjóri í hinum ýmsu golfferðum og kennt í golfskólum erlendis á vegum íslenskra ferðaskrifstofa og ættu því margir golfferðalingar að kannast við hann. Sigurpáll G. Sveinsson Uppbygging skólans sumarið 2011 3ja daga skóli - kvenna og almenningsnámsk. Nemendum er skipt í tvo hópa A og B. Hóparnir skiptast á að vera í golfkennslu og spila á velli. Dagur 1 08:00 Morgunmatur 09:00 Hópur A golfkennsla, farið verður í grunnatriði, s.s. uppstillingur, grip, mið, boltastöðu, golfsveiflu ofl. Pelz æfingar, ekkert tengt klæðaburði :-) 09:00 Hópur B spila á velli 10:30 Kaffi hjá kennsluhóp 11:00 Æfingasvæði. Sveiflan tekin uppá video hjá kennsluhóp 12:15 Hádegismatur og umræður um skorkort 13:00 Hópur A spila á velli 13:00 Hópur B golfkennsla, sama dagsskrá og fyrir hádegi, kaffi kl. 14:30 19:30 Videoskoðun 20.00 Kvöldmatur Dagur 2 08:00 Morgunmatur 09:00 Hópur B golfkennsla, grunnatriði púttstrokunnar æfð með áherslu á lengdar- og stefnustjórnun 09:00 Hópur A spila á velli 10:30 Kaffi 11:00 Grunnatriði stuttra vippa æfð með áherslu á lengdar- og stefnustjórnun. 12:15 Hádegismatur og umræður - hvað er forgjöf. 13:00 Hópur B spila á velli 13:00 Hópur A golfkennsla, sama dagsskrá og fyrir hádegi, kaffi kl. 14.30 16.15 Allir saman í Sandgryfju kennslu. 20:00 Kvöldmatur og kvöldvaka Dagur 3 08:00 Morgunmatur 08:30 Lærðu reglurnar og umgengni. Verklegt 11:00 Pútt, vipp og sláttur - þrautir. 12.30 Matur 13:15 Fyrsti rástími í golfmóti golfskólans (ekkert stress fyrir þá sem eru byrjendur) 16:30 Kaffi, verðlaunaafhending og kveðjustund Verð kr. 54.900 á mann Innifalið: Gisting, fullt fæði, golfkennsla, golfhringir og kvöldvökur.  

 

Til baka